Thursday, February 16, 2006
Jæja er ekki kominn tími á eina færslu eða svo?
Anybody..huhh?? ok
Simmi Hasselhoff, Mústapha Hadji svo fáein nöfn séu nefnd....jújú þið þekkið mig þetta er ég Hressi Fressinn.
Steini Lú eða Dansar með Breezer eins og hann er kallaður í saumaklúbbnum sínum hefur byrjað með látum og er kominn með heila tvo pistla.
Írski Frakkinn hefur ekkert skrifað og er það skömm skal ég segja. Það er engin afsökun að þú sért busy í sturtukennslu.
Hvað er á döfinni hjá Vodka bræðrum:
1. Heimsyfirráð
2. Teiknimyndasería þar sem við gerum grín að Búddha munkum...það er enginn óhultur
3. Gefa Jóa Cool til einstakra barna!
4. Gera flottari banner
5. Detta íða(þetta er reyndar topp priority)
6. finna upp Vodka Bjór
7. Aflétta áfnegis banninu í grunnskólunum
8. Heimta höfn í Hveragerði
9. Hneppa Eyrarbakka í gæsluvarðhald
10. Kenna Eyrbekkingum mannasiði
Þetta er svo sem það helsta.
David Hasselhoff öðru nafni Simmi Idol öðru nafni Mustapha Hadji öðru nafni Keisarinn af Hveragerði öðru nafni NasaCóva öðru nafni Hressi Fressinn biður að heilsa
Posted at 03:49 pm by Hasselhoff
Permalink
Best að fara yfir það sem er á döfinni...
Nú eftir margar áskoranir og pyntingar í fangabúðum bandaríkjamanna í Guantanamo bay á Kúbu þá ákvað ég að fara af stað með vodkann aftur. Allir búnir að sakna hans og Árni grái talar meira að segja um það að hann hafi aldrei verið jafn óvinsæll eins og eftir að Vodkinn hætti. Því kallaði ég til gamla gengið. Ég reif upp hring minn á baugfingri merktum vodkanum og sendi út neyðarkall. Því svöruðu:
Fyrir hönd Hveragerðis kemur maður sem allir ættu að þekkja. He is so big, so hot, so filthy and he´s got a black sexslave! Hann hefur fengið mörg nöfn í gegnum tíðina eins og Simmi Idol, hressi fressinn, Rauða hetjan, Hasselhoff og fleiri og fleiri. Dömur mínar og herrar give it up fyrir ... (viljum njóta nafnleyndar að hluta til)
Ég sendi út neyðarkallið og frakkland svaraði. Þessi maður er öllum kunnugur. Hann þurfti bara að mæta á svæðið í básahrauninu þá vann hann byssó. Þekktur fyrir þyrluna, ermalausa frakkann, 5 hjóla fjórhjólið og að hrekja afstæðiskenningu einstein. Eins og er er hann að starfa sem menningarfulltrúi íslendinga í frakklandi, kennandi þeim hluti eins og að pissa á aðra í sturtu, setja hann með opið inn á klósett og vera seinn hvert sem hann fer. Hann hefur verið þekktur undir mörgum nöfnum eins og rauða stjarnan, massaða kvikindið og sex appeal in a can. Eini maðurinn sem hefur stokkið hærra og lengra heldur en Michael Jordan og hann hjólaði í loftinu og tók pósur. Ég kynni fyrir ykkur arftaka Flögu veldisins, Frakkann!
Sjálfur mun ég kalla mig Steina Lú en hef einnig gengið undir mörgum nöfnum eins og Fagri Limur, Dansar við áfengi, Lúllinn dúllinn og "hey þú sæti". Eini maðurinn sem hefur synt marvaða yfir kyrrahafið og drukkið kók með hægri hendinni á meðan. Stofnandi Black panthers, gaurinn sem setti af stað coriolis svigkraft jarðar og bjó til þyngdarafl jarðar. Ladies and gentleman, again, Steini Lú.
Vona að þið njótið pistlanna og látið orðið berast með að vodkinn er aftur kominn upp! Góðar stundir...
Lúðvíks!
Posted at 11:49 am by diggidydogg
Permalink
Tuesday, February 14, 2006
How do you like dem apples
Stundum efast ég um tilganginn í að lifa þessu lífi. Sit hérna í heimspekilegri landfræði og hægt en örugglega losna ég frá sálunni. Til hvers heimspeki? Nú heimspeki er þekkt síðan fyrir tíma Rómverjanna þar sem Rónar bæjarins (stórt "R" er í Rónar af virðingu) þurftu að sýna fram á að vera að gera eitthvað til að fá atvinnuleysisbætur svo þeir skráðu sig "heimspekinga"...
Má nú segja að maður sé með þeim slappari í drykkjunni nú til dags. Meira að segja menn eins og Guðni Jun horfa á mig og flissa, brjóta niður sjálfstraustið. Jú vissulega er búið að langt síðan ég smakkaði á sopanum góða og ég fæ alltaf tár í augun þegar ég þarf að sótthreinsa sár með spritti heima og upp gusast þessi yndislega lykt... þrjú skot úr byssunni fyrir fallin félaga (trompetsóló)...
-Steini Lú
Posted at 09:18 am by diggidydogg
Permalink
Jæja, smá tilraun hérna til að blogga þó ég sé afskaplega latur við það. Sjá hvort þetta drasl virkar.
- Lúllinn
Posted at 09:12 am by diggidydogg
Permalink